<$BlogRSDURL$>
Ekki bara sæt...

fimmtudagur, október 13, 2005

 
Blog.central er meira töff!
Jæja, þá er ferð minni með blogspot lokið!
Komið hingað og kvittið svo fyrir ykkur þar! ;)


http://blog.central.is/ekkibarasaet
Comments-[ comments.]

miðvikudagur, október 12, 2005

 
Bless bless fokking blogspot!
Ég er alveg búin að gefast upp á þessu helv. blogspot dæmi... nú færi ég mig yfir og hananú!
frekari upplýsingar um það síðar!
Comments-[ comments.]
 
jeij
Comments-[ comments.]
 

Comments-[ comments.]

föstudagur, október 07, 2005

 
Ó, hversu latur getur maður orðið?!
Vá... Ég er greinilega með allra verstu nördunum í HÍ...
Er á Þjóðarbókhlöðunni kl 16:15 á föstudegi og það eru fáránlega fáir hérna! Þarf þetta lið ekkert að læra? Eða er ég bara svona hrikalega sein á því og allir aðrir búnir með verkefnin sem á að skila eftir helgi?... Allavega... ég þarf virkilega að fara að læra, en er ekki að nenna því...
Sorglegt hvað mér finnst þetta óspennandi... Ritgerð um það hvernig á að nota internetið til að efla lýðræði... Er ekki að finna neinar heimildir á íslensku svo ég þarf líklega að þýða milljón bls yfir á ensku í hausnum á mér! Þetta er ekki skemmtilegt verk!
Jæja...
Annars er lífið alveg ágætt þakka ykkur fyrir!

Nú er klukkan orðin 17:35 og ég er ekki enn farin að skrifa orð í ritgerðinni...
Ætla bara að deila pínu með ykkur...
Alltaf þegar ég sit í bíl og lít óvart á manninn í næsta bíl og hann horfir til baka, svona mini-augnkontakt, þá fæ ég alveg fáranlegan hroll... Svona eins og ef maður sér eitthvað ógeðslegt eða heyrir útburðarvæl... Furðulegt?!!
Svo lenti ég í því að fá augnkontakt við e-n gaur hérna á Bókhlöðunni og ég fékk líka svona hroll þá...
Djöfull er ég skrýtin maður!!! Held ég þurfi virkilega á hjálp að halda... Er ég virkilega orðin svona fráhverf karlmönnum? Nei ég held nefnilega ekki... Þetta gerist ekkert alltaf í svona face to face aðstæðum, en Alltaf þegar ég lendi í þessu þegar ég sit í bíl, og Bara ef karlmenn eiga í hlut...
Veit e-r símann hjá mönnunum í hvítu sloppunum? Ég er að hugsa um að hringja bara sjálf!
Já... kannski er ég bara komin með Rauðu sokkana... ætli ég steypist öll út í kýlum og brenni alla brjóstahaldarana mína?... Æ Vilborg mín, ef það gerist, ertu þá til í að reyna að stoppa mig? Það er nefnilega rosalega dýrt að kaupa nýja brjóstahaldara...
Comments-[ comments.]

fimmtudagur, október 06, 2005

 
Er ég svona ljót?!!
Les þetta enginn?!!
Nema mamma...
og nokkrir aðrir reyndar...
Comments-[ comments.]

mánudagur, október 03, 2005

 
Læri, læri, læri...
Já ég er sko orðin öflugur (ath. öflugur ekki öfugur!) bloggari!
Á nefnilega að vera að læra, og sit þess vegna inni á Þjóðarbókhlöðu límd við skjáinn og les blogg annarra! Þetta gerist stundum þegar maður á að vera að gera eitthvað annað... Ætli ég drulli mér svo ekki heim til að lesa þar, og enda svo með því að hanga á msn eða í tölvuleikjum (ekki svona eve online eða eitthvað svo hallærislegt, nei við erum að tala um tetris eða eitthvað því um líkt!), eða laga til, sem væri nú ekki svo vitlaust þegar herbergið mitt á í hlut. Þvoði samt 3 vélar á laugardaginn sem ég kalla ansi gott!
Þynnkan er farin... renndi henni niður með ljúffengum mat sem hann Hannes yndi eldaði fyrir okkur í gær. Rosalega er gott að hafa Hannes í lífi sínu, hann er svo góður við okkur. Kemur oft og eldar fyrir okkur letingjana um helgar! Segir svo að það sé miklu skemmtilegra að elda hjá okkur en heima hjá sér því þá þurfi hann ekki að vaska upp eftir matinn... Ég er allavega alveg rosalega þakklát! Takk fyrir matinn Hannes minn!
Var annars í ótrúlega skemmtilegum tíma áðan... Hann var svona skemmtilegur af því að ég fékk út úr þessari blessaðri lýðræðisritgerð sem ég skilaði á síðustu stundu fyrir 2 vikum síðan... Og ég fékk mun hærra fyrir hana en ég hélt ég myndi fá, eða átti skilið... :) Gaman að fá svona óvæntan glaðning í formi einkunnar!
Annars er ég að hugsa um að drífa mig bara heim... ég er hvort eð er bara í ruglinu núna, ekki búin að gera neitt af viti hérna!
Pabbi minn á afmæli á morgun, 4. okt., bara svona ef þið vissuð það ekki! Efast samt um að hann lesi þetta (ég fékk næstum hjartaáfall þegar gaurinn fékk gsm síma! og notar hann í þokkabót!) svo ég ætla bara að hringja í hann á morgun og sleppa því að senda honum kveðju hérna!
Svo á ástkær systir mín, hún Jóna afmæli bráðum, en það eru reyndar tæpar 4 vikur þangað til. Hún og Óli og Álfheiður Una ætla að koma um næstu helgi, það verður gaman! Er búin að panta klippingu hjá henni um helgina... það verður líka gaman, enda er hárið mitt farið snerta axlirnar á verstu dögunum!
Já ég gleymdi næstum. Mamma og Þröstur komu suður um helgina, það var rosalega gaman að sjá þau. Samt pínu skrýtið að hitta þau svona "oft" því það var ekki "nema" mánuður síðan ég sá þau síðast! Þau komu í kaffi á föstudaginn (fengu reyndar ekkert kaffi og í raun hvort vott né þurrt) og buðu mér svo út að borða um kvöldið á Ruby Tuesday. Voðalega notalegt fyrir okkur Þröst en mamma fékk bara súpu...
Hætti núna því annars nennir enginn að lesa þessa rullu!
kysskyss eða út af!
Comments-[ comments.]

sunnudagur, október 02, 2005

 
Hvar endar þetta eiginlega?!
Við Jóna Rún ákváðum í gær að fara á djamm og strax þá var ljóst að þetta yrði ekkert létt drykkja og svo farið heim snemma að sofa...
Nei við ákváðum að fara á blindafyllerí... og blindafyllerí var það!
Veit ekki hvað varð um rödd skynseminnar þetta kvöld, því ég fór ágætlega ölvuð niðrí bæ en ákvað samt að skella í mér tveimur tvöföldum þar! Ekki sötra hægt og rólega... ónei... skella í mig!
restin af kvöldinu er í móðu... Ég man allt, en það er samt í móðu... svona eins og ég viti ekki hvort mig hafi verið að dreyma eða ekki.
Nú ligg ég drulluþunn uppi í rúmi og klukkan er orðin 5. Þetta gengur náttúrulega ekki lengur! Ég verð að taka mig taki! Enda er ætlunin að vera edrú um næstu helgi. Held reyndar að það sé vísindaferð á föstudaginn en ég læt mér þá bara nægja 2 bjóra! oj, mér varð meira óglatt bara af því að skrifa bjór!
Lífið er erfitt þegar maður er ungur og vitlaus!
Comments-[ comments.]

Powered by Blogger