<$BlogRSDURL$>
Ekki bara sæt...

sunnudagur, október 02, 2005

 
Hvar endar þetta eiginlega?!
Við Jóna Rún ákváðum í gær að fara á djamm og strax þá var ljóst að þetta yrði ekkert létt drykkja og svo farið heim snemma að sofa...
Nei við ákváðum að fara á blindafyllerí... og blindafyllerí var það!
Veit ekki hvað varð um rödd skynseminnar þetta kvöld, því ég fór ágætlega ölvuð niðrí bæ en ákvað samt að skella í mér tveimur tvöföldum þar! Ekki sötra hægt og rólega... ónei... skella í mig!
restin af kvöldinu er í móðu... Ég man allt, en það er samt í móðu... svona eins og ég viti ekki hvort mig hafi verið að dreyma eða ekki.
Nú ligg ég drulluþunn uppi í rúmi og klukkan er orðin 5. Þetta gengur náttúrulega ekki lengur! Ég verð að taka mig taki! Enda er ætlunin að vera edrú um næstu helgi. Held reyndar að það sé vísindaferð á föstudaginn en ég læt mér þá bara nægja 2 bjóra! oj, mér varð meira óglatt bara af því að skrifa bjór!
Lífið er erfitt þegar maður er ungur og vitlaus!
Comments-[ comments.]

Powered by Blogger