<$BlogRSDURL$>
Ekki bara sæt...

fimmtudagur, mars 25, 2004

 
Shop ´til u drop!
Hellú!!
Hvað er svo að frétta?
Segi bara allt fínt takk! Fór í Kringluna í dag... (ótrúlegt en satt) og verslaði mér peysu og bol :) Ég er svo miklu hamingjusamari núna! Maður verður nefnilega alveg voðalega happy af því að versla... ég gæti t.d. verslað allan daginn og aldrei leiðst! Þess vegna ætla ég að ná mér í ríkan mann- Því ekki mun ég hafa tíma til þess að vinna hvort eð er, alltof upptekin í búðum!
Í alvöru... Ég held að fátt gleðji mig meira en að fara heim með fullar hendur af pokum sem í eru föt eða bara e-ð til þess að hafa gaman af... Sorgleg kannski... En svona er þetta bara! Ekki það að ég sé alltaf að kaupa mér e-ð... eða þannig sko... a.m.k. finnst mér ég Aldrei eiga neitt til þess að fara í - nema kannski í vinnuna en þá er mér líka nokk sama hvernig ég lít út og á alveg fullt af misfallegum bolum og buxum til að fara í :)
Annars fór ég í Pennan, Kringlunni í dag, eins og venjulega, þar vinnur hin rosalega mjóa og sæta Dunda og hef ég mjög gaman af því að heilsa upp á hana þegar ég á leið hjá! Oft á hún meira að segja e-ð slúður í pokahorninu-
Nú ætla ég að byrja að mæla með stöðum til þess að fara á- þ.e. stöðum sem mér finnst alveg svaka-skemmtilegir og í dag er það
Penninn Kringlunni- því þar er svo gaman að slúðra og helmingur starfsfólksins er farinn að þekkja mig! ;)
Comments-[ comments.]

Powered by Blogger