<$BlogRSDURL$>
Ekki bara sæt...

miðvikudagur, mars 10, 2004

 
Lafði Lokkaprúð...
Svo fííííín!!! Eða vil að minnsta kosti halda það... Var nefnilega í litun áðan... Og þvílíkur munur! Nú get ég sko farið á árshátíð án þess að skammast mín! Þ.e. þegar ég verð búin að fara í svona 10 ljósatíma í viðbót... ;)
Verð samt líklega að vefja mig inn í plast því ég á ekkert til að fara í... Vonandi reddast það samt- Vil helst ekki gera fólki það að mæta bara í plasti, það gæti farið með það...
Svo á bara að skella sér á djammið á föstudaginn! Hitta vini og kunningja úr MA en 4. bekkur er í náms- og starfskynningarferð í borg óttans!

Helena Björg fyrrverandi samstarfskona mín í Leiru og vinkona (við erum nú ennþá vinkonur) á annars 21 árs afmæli í dag! Til hamingju með afmælið sæta!
Comments-[ comments.]

Powered by Blogger